Danir munu senda hernaðarstuðning til Úkraínu sem jafngildir 4,8 milljörðum danskra króna, eða tæpum 90 milljörðum íslenskra króna. Þetta upplýsti Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra Danmerkur í samtali við fréttamenn í morgun. Þetta er 32. stuðningspakkinn sem Danir senda til Úkraínu frá upphafi stríðsins þar.Rasmussen sagði jafnframt að 150 milljónum danskra króna, eða 2,8 milljörðum íslenskra króna, í aðstoð við orkuiðnaðinn í Úkraínu.„Fólki er þegar orðið hrollkalt í Úkraínu. Það eru meiri rafmagnstruflanir en við höfum séð síðan stríðið hófst. Við viljum gjarnan nota þennan dag til að sýna að það megi áfram treysta á stuðning Danmerkur.“Zelensky lenti í Kaupmannahöfn nú fyrir stundu og heldur ræðu í danska þinginu í dag. Hann verður fyrsti erlendi þjóðarleiðtoginn sem fær að tjá si