Fjölskyldubaklandið ræður miklu um hver kemst inn á húsnæðismarkaðinn og ungir kaupendur, 34 ára og yngri, sjá skort á eigin fé sem meiri farartálma en greiðslumat og afborganir.Þetta er eitt þess sem kemur fram í niðurstöðum könnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á stöðu háskólamenntaðs fólks á húsnæðismarkaði.Hátt hlutfall kaupsamninga varðar fyrstu kaupendur sem talið er mega rekja til liðsinnis foreldra ungra kaupenda. Margir reiða sig á foreldraaðstoðina, segir Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingur BHM.„Og það eru 62% háskólamenntaðs fólks sem keypt hefur húsnæði sem fékk fjárhagsaðstoð frá öðrum en lánastofnun,“ sagði Ingvar Freyr í morgunútvarpi Rásar 2.Aðstoðin segir Ingvar að sé hluti af skýringunni á að fleira yngra fólk komist inn á fasteignamarkaðinn. Raunhækkun á eigi