Matvælastofnun varar neytendur við neyslu á wasabi-hrískexi frá vörumerkinu Golden Turtle vegna aðskotaefna sem greinst hafa í vörunni. Um er að ræða glýsidýl fitusýruestera sem geta myndast við vinnslu matvæla. Mynd: MAST Innflutningsfyrirtækið Lagsmaður ehf., sem rekur Fiska.is, hefur innkallað vöruna af markaði og fjarlægt hana úr verslunum í samráði við viðkomandi heilbrigðiseftirlit. Tilkynning um aðskotaefnin barst íslenskum yfirvöldum í...