Mennirnir tveir sem brutust inn hjá Gullmiðnum í Mjódd í gær notuðu stærðarinnar hamar til að brjóta gler verslunarinnar og höfðu þýfið á brott í bónuspoka. Öryggismyndavélar sýna mennina ganga frá Mjóddinni fótgangandi. Svo virðist sem þeir hafi ekki flúið vettvang á bifreið.