Íslenska ríkið hafði til skoðunar að selja tilteknum lækni 370 fermetra íbúðarhús í Laugarási í Bláskógabyggð með sérstakri heimild sem óskað var eftir með breytingu á fjárlögum þessa árs. Beiðnin um söluna á húsinu kom frá heilbrigðisráðuneytinu og vakti málið nokkra athygli í sveitarfélaginu. Húsið stendur nærri nýju baðlóni í Laugarási sem talsvert hefur verið fjallað um í fjölmiðlum.Það sem er óvenjulegt við málið er að til stóð að ríkið seldi þetta einbýlishús beint til læknisins án auglýsingar á opnum markaði.Í tillögunni um breytingar á fjárlögum sagði um málið: „Heilbrigðisráðuneytið hefur óskað eftir að gengið verði til beinna samninga um sölu á 370 fermetra einbýlishúsi í Laugarási í eigu ríkisins til yfirlæknis heilsugæslunnar sem hefur verið með húsið á leigu um árabil vegna s