Friðarviðræður hafnar í Abú Dabí

Samninganefndir Úkraínu, Rússlands og Bandaríkjanna hófu fund í morgun í Abú Dabí um hvernig ljúka ætti stríðinu í Úkraínu. Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu segir að árangur Úkraínumanna á vígvellinum og mikið mannfall Rússa styrki stöðu Úkraínu fyrir viðræðurnar.Rússneski ríkismiðillinnn birti í morgun mynd af sendinefndum Rússa og Úkraínumanna sitjandi á móti hvor annarri, með bandarísku sendinefndina við borðsendann. Þetta er fyrsti þríhliða fundur landanna um Úkraínustríðið í níu mánuði.Fyrir fundinn ræddu sendinefndir Úkraínu og Bandaríkjanna við fulltrúa frá NATO og fjórum Evrópuríkjum - Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi og Ítalíu. Tilgangurinn með þeim fundi var að samhæfa næstu skref sem taka ætti á samningafundinum. Ráðgert er að viðræðurnar verði næstu tvo daga í Abu Dhabi. Jar
Friðarviðræður hafnar í Abú Dabí

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar