Að minnsta kosti níu bandarískum eldsneytisflugvélum og þremur Osprey-herflugvélum var í gær flogið frá Bretlandi vegna meintrar ógnar. Flugvélarnar höfðu verið hýstar í RAF Mildenhall-flugstöðinni í Suffolk en það mun hafa verið gert vegna ótilgreindrar ógnar frá Íran. Þetta er í annað sinn sem bandarískum herflugvélum er flogið þaðan vegna slíkrar ógnar.