Ný rannsókn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) bendir til þess að um 12 prósent allra krabbameinstilfella í heiminum árið 2024 hafi mátt rekja til sýkinga. Það jafngildir um 2,3 milljónum nýrra tilfella. Rannsóknin, sem birtist í vísindaritinu The Lancet Oncology, greindi hvaða sýkingar tengjast helst krabbameini og hvernig þær geta stuðlað að myndun þess. Fimm sýkingar tengdust flestum krabbameinstilfellum sem rekja mátti til...