Gunnar Þórarinsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, lést á Hjúkrunarheimilinu Nesvöllum 3. nóvember síðastliðinn, 77 ára að aldri. Frá andláti hans var greint í Víkurfréttum. Gunnar fæddist í Reykjavík 11. apríl 1949 og ólst upp í Vogahverfinu. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1969, húsasmíðanámi frá Iðnskólanum í Reykjavík 1972 og cand.oecon.-prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1975....