Erlendur karlmaður situr í gæsluvarðhaldi á Íslandi vegna nauðgunar sem hann er grunaður um að hafa framið á Írlandi árið 2004.Maðurinn var handtekinn á Íslandi á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar frá írskum yfirvöldum sem var gefin út í september 2014. Ætluð brot gætu varðað ævilöngu fangelsi þar í landi.Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur kemur ekki fram hvert ríkisfang mannsins er. Hann mun hafa dvalið hérlendis frá árinu 2017. FLÚÐI ÍRLAND OG NOTAÐI FALSAÐ VEGABRÉF Manninum er gefið að sök að hafa nauðgað konu og beitt hana ofbeldi á Írlandi í maí 2004. Hann yfirgaf Írland skömmu eftir að hann losnaði úr haldi lögreglu það ár.Árið 2007 var hann handtekinn aftur og ákærður. Hann gekk laus gegn tryggingu og því að hann afhenti ferðaskilríki sín. Maðurinn lét sig samt sem áður hverf