Afbrotafræðingur fagnar frumvarpi dómsmálaráðherra um vændiskaup þar sem kveðið er á um harðari refsingar. Hún segir það löngu tímabært.„Vændiskaupendur á Íslandi hafa verið einu sakborningarnir sem hafa hlotið nafnleynd. Af því það er venjulega þannig að það eru birt nöfn í öllum dómum en af því þeir hafa komist upp með að borga bara sekt og fara þá ekki fyrir dóm, þá hefur þessi nafnleynd ríkt,“ segir Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur og dósent við Háskóla Íslands.Í frumvarpi dómsmálaráðherra er lagt til að fangelsisdómur verði lágmarksrefsing við fangelsiskaupum.Margrét segir rannsóknir sýna að harðari refsingar dragi úr eftirspurn eftir vændi.„Og það sem meira er og það sem skiptir kannski meira máli er að þar sem eftirspurnin er minni, þar er minna mansal. Mansal er náttúruleg