Yfir 400.000 rússneskir hermenn hafa verið drepnir í átökunum í Úkraínu síðan Rússar réðust þar inn í febrúar 2022. Þetta kemur fram í gögnum sem var lekið frá rússnesku hagstofunni til tölvuþrjóta.The Guardian greinir frá. Gögnunum var lekið frá rússnesku hagstofunni Rosstat til tveggja hópa tölvuþrjóta, Cyber Partisans sem tengist stjórnarandstöðunni í Belarús og úkraínska hópsins Silent Crow.Gögnin innihalda meira en 11 milljónir dánarvottorða. Í þeim koma meðal annars fram upplýsingar um aldur hinna látnu, búsetu og hvar þeir létust. Tölvuþrjótarnir deildu gögnunum með The Guardian og nokkrum öðrum fjölmiðlum.Samkvæmt gögnunum eru 412.576 dauðsföll tengd við innrásina með beinum hætti, annaðhvort með opinberum kóða fyrir dánarorsök eða skriflegum upplýsingum um átök og hernaðaraðgerðir