Sprengingar í Ríad

Fjöldi sprenginga heyrðist í Ríad, höfuðborg Sádi-Arabíu í nótt. Fréttamenn AFP fréttaveitunnar greindu frá sprengingunum. Íbúar fengu viðvörun frá stjórnvöldum í smáskilaboðum í síma sína, þar sem íbúar voru hvattir til að leita skjóls á öruggum stað vegna ógnar úr lofti eins og það var orðað.Hernaðarbandalag sem leitt er af Sádi-Aröbum, sagði síðar í færslu á X að loftvarnarkerfi hefði stöðvað og eytt flugskeyti sem Hútar hefðu beint að Ríad. Síðar voru send skilaboð frá almannavörnum sem sögðu hættuna liðna hjá.Hútar hafa gert tíðar árásir í Sádi-Arabíu að undanförnu. Á sunnudag var árás gerð á Aramco turninn, sem er í viðskiptahverfinu í Ríad en Aramco er gas- og olíuvinnslufyrirtæki Sádi-Arabíu.Yfirvöld í Sádi-Arabíu sögðu að minni háttar tjón hefði orðið í árásinni eftir að sprengjub
Sprengingar í Ríad

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar