Dana White, framkvæmdastjóri UFC, hefur hafnað boði Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að gerast fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins.Forsetinn bauð honum starfið í færslu á samfélagsmiðlum á laugardaginn, en segir nú að hann hafi verið að grínast. White hitti forsetann í Hvíta húsinu í gær þar sem Trump spurði White á blaðamannafundi hvort hann hefði áhuga á starfinu.White þakkaði fyrir boðið en sagðist ekki hafa áhuga á stjórnmálum. Hann hefði þó ekki viljað vera ókurteis og hafna boðinu án þess að ræða við forsetann fyrst.White er vinur Trumps til fjölda ára og kom að skipulagningu á umdeildu UFC-bardagakvöldi sem haldið var við Hvíta húsið í júní til að fagna 250 ára afmæli Bandaríkjanna og áttræðisafmæli Trumps.Staða fjölmiðlafulltrúa Hvíta hússins hefur verið laus síðan Katie Zacharia va