Breski rithöfundurinn M. John Harrison með Booker-verðlaunastyttuna og bók sína, Endalok alls.AP / Kirsty WigglesworthBreski rithöfundurinn M. John Harrison hlaut í gær Booker-verðlaunin fyrir dystópísku skáldsöguna Endalok alls – eða The End of Everything á frummálinu. Sagan fjallar um Bretland eftir heimsendi.Formaður dómnefndarinnar Mary Beard sagði á blaðamannafundi að Endalok alls bæri af sem sérlega vel skrifuð og af miklum metnaði. Skáldsagan er þrettánda bók Harrison og hefur að geyma draumkenndar lýsingar og tilvísanir í Brexit, Covid-19 faraldurinn og aukinn þátt tækninnar í daglegu lífi.Harrison er 81 árs að aldri og elsti rithöfundurinn sem vinnur til verðlaunanna, sem eru um 8,2 milljónir íslenskra króna.