Atassut, einn þriggja stjórnarflokka á Grænlandi, hefur sagt sig úr ríkisstjórn. Grænlenska ríkisútvarpsið greinir frá.Framkvæmdarstjórn flokksins samþykkti ákvörðunina í gær. Rekja má úrsögnina til deilna um Nivi Olsen, mennta-, menningar-, íþrótta- og kirkjumálaráðherra. Atassut vildi að hún segði af sér í kjölfar umdeildrar styrkúthlutunar. Olsen hefur neitað að gera það.Ríkisstjórnin heldur þó enn meirihluta á þingi en flokkarnir tveir sem eftir sitja í ríkisstjórn eiga 18 þingsæti af 31 á grænlenska þinginu.