Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður og fyrrverandi Alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, segir það óheimilt samkvæmt lögum hafi Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, rætt um málefni Landsnets, arðgreiðslur og meðferð skuldabréfs Landsvirkjunar við stjórn Landsvirkjunar.„Það segir þar að í stjórnum slíkra félaga eins og Landsvirkjunar sé einstökum félagsmönnum, sem eru þá eigendurnir sem eru handhafi hlutabréfsins í Landsvirkjun, óheimilt að gera nokkuð sem heyrir undir verksvið stjórnar og framkvæmdastjórnar,“ segir Sigurður Kári. Daði Már er þar í hlutverki eiganda Landsvirkjunar.„Ef menn voru að ræða þetta þá er eigandinn að hafa mögulega íhlutun í hluti sem stjórn og forstjóri eiga að hlutast til um til hagsbóta fyrir félagið. Eigandinn má ekki koma þarna inn.“Sigurður K