Þingmaður Repúblikana vill svipta varnarmálaráðherra embætti

Thomas Massie, fulltrúadeildarþingmaður Repúblikana í Kentucky-ríki, hefur lagt til að Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, verði ákærður til embættismissis vegna stríðsins í Íran.Hann segir ráðherrann hafa brotið gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna. Massie lagði fram ákæru í átta liðum. Þar er Hegseth meðal annars gefið að sök að heyja ólöglegt stríð í Íran og misnota vald sitt sem yfirmaður varnarmála. Varaforseti Bandaríkjanna kenndi nýverið stríðinu í Íran um tap Repúblíkana í þingkonsningunum.Massie segist vilja að Trump víki Hegseth úr embætti áður en nýkjörnir demókratar geti gert það þegar þeir taka sæti sín á þinginu í janúar.Demókratar unnu stórsigur í þingkosningum í landinu á dögunum. Repúblikanar eru þó enn með meirihluta á fulltrúadeildarþingi þar til nýkjörnir þingmen
Þingmaður Repúblikana vill svipta varnarmálaráðherra embætti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar