Enskir fjölmiðlar keppast nú um að fjalla um það að Manchester United hafi tekið ákvörðun um að reka Michael Carrick. David Ornstein, fréttamaður The Athletic, segir að ákvörðun sé tekin og því er hægt að trúa. Eddie Howe, Julian Nagelsmann og Antonio Conte hafa mest verið bendlaðir við starfið, en nýtt nafn er núna mest í umræðunni.