Rósa Líf Darradóttir, formaður samtaka um dýravelferð, segir það jákvætt að umræða um dýravelferð sé komin upp á yfirborðið. Myndefni innan úr svínabúi Stjörnugríss eftir innbrot hefur vakið mikla athygli um helgina og spurningar um dýravelferð.„Þessi iðnaður þolir ekki dagsljósið og það er nauðsynlegt að neytendur sjái hvernig varan verður til. Samfélagið er að bregðast við og þetta er í raun jákvæður hlutur, þetta er komið á yfirborðið, þetta er ekki einkamál hvernig farið er með dýrin.“Rósa var gestur í Kastljósi í kvöld ásamt Trausta Hjálmarssyni, formanni Bændasamtakanna.Formaður samtaka um dýravelferð segir nauðsynlegt að neytendur sjái hvernig varan verður til. Formaður Bændasamtakanna lítur svo á að það sem komi fram í myndefni innan úr grísabúi Stjörnugríss sé frávik.Trausti segis