Fyrir tveimur árum taldi embætti ríkislögreglustjóra verulega skorta á að lögregla gæti sinnt lágmarksviðmiðum um öryggis- og þjónustustig, um allt land, vegna manneklu. Þetta kemur fram í skýrslu um mannaflagreiningu ríkislögreglustjóra frá 2024 sem fréttastofa fékk afhenta nýverið.Þar segir að lögreglumenn þyrftu þá þegar að vera 1150 til að lögregla gæti sinnt hlutverki sínu með fullnægjandi hætti um allt land. Þeir voru þá 795. Verulega hafi vantað upp á að markmiðum löggæsluáætlunar til 2023 hafi verið náð.Nú, tveimur árum síðar, eru lögreglumenn 807. Í nýrri löggæsluáætlun dómsmálaráðuneytisins er gert ráð fyrir að lögreglumönnum fjölgi um 50 á ári og verði rúmlega þúsund árið 2031. Á sama tíma á að fjölga öðru starfsfólki embættanna um hundrað.Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssamba