Borgarbyggð vill ekki að fyrirhugað vindorkuver í Borgarfirði fari í biðflokk rammaáætlunar. Formaður byggðaráðs segir sýnileika og samfélagsleg áhrif það mikil að Grjótháls eigi heima í verndarflokki.Af sjö vindorkukostum í tillögu verkefnisstjórnar rammaáætlunar í samráðsgátt er lagt til að tveir fari í biðflokk, Grjótháls í Borgarfirði og Hnotasteinn á Melrakkasléttu. Borgarbyggð hefur áður lagst gegn því að Alviðra fari í nýtingarflokk.Sigurður Guðmundsson, formaður Byggðaráðs í Borgarbyggð, segir virkjunarkostinn á Grjóthálsi, sem kallaður er Alviðra, hafa hátt verndargildi. Hann bendir á að Grjótháls liggi mitt í sveit þekktri fyrir landbúnað, útivist og afþreyingu.„Hann er í mikilli nálægð við þekktar laxveiðiár og það er mikil andstaða í nærsamfélaginu við vindorkukostinn,“ segir S