Jökull alveg rólegur yfir þjálfarakaplinum

Jökull Elísabetarson er mættur til starfa á Kópavogsvelli en hann var kynntur sem nýr þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta á föstudaginn. Hann segir umtal um þjálfarakapal og að vera orðaður við hin og þessi félög ekki hafa áhrif á sig.Jökull var látinn fara sem þjálfari Stjörnunnar um miðjan júní. Hann segist hafa kúplað sig alveg út þangað til hann fór að huga að næstu skrefum í haust. Hann varð Íslandsmeistari með Breiðablik 2010, þjálfaði Augnablik - venslalið Breiðabliks 2017-21 - og er nú snúinn aftur, hann tekur við liðinu af Ólafi Inga Skúlasyni.„Breiðablik er auðvitað mér kært og ég hafði alltaf hugsað að ég myndi vilja koma aftur. Ég ræddi á þeim nótum við fólkið í Breiðablik. En hvort að þetta væri tímapunkturinn var svosem ekkert líklegt. Breiðablik átti áhugavert tímabil.
Jökull alveg rólegur yfir þjálfarakaplinum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar