Virði hlutabréfa í bandaríska tæknirisanum Nvidia féll um rúmlega átta prósent við opnun markaða vestanhafs í morgun, áður en það rétti úr kútnum.Ástæðan er óvissa vegna kynlífs- og njósnahneykslis sem Jensen Huang, stofnandi og forstjóri fyrirtækisins flæktist í.Síðdegis var verðið rúmlega fimm prósentum lægra en við opnun og hafði fyrirtækið því fallið í virði um sem nemur tugum þúsunda milljarða króna.Nvidia er enn eitt verðmætasta fyrirtæki í heimi enda er það leiðandi í framleiðslu örgjörva til notkunar í þróun gervigreindar. Huang, einn ríkasti maður heims, hefur líka verið einn af kyndilberum gervigreindarbyltingarinnar síðustu misseri og er jafnvel lýst sem guðföður gervigreindarinnar.Því varð töluverður skjálfti í tækniheiminum þegar fréttir tóku fyrst að berast af því að Huang ha