Tafir á umferð eftir þriggja bíla árekstur í Garðabæ

Þriggja bíla árekstur varð á gatnamótum Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar í Garðabæ í kvöld. Engin slys urðu á fólki. Þetta staðfestir Sigurjón Hendriksson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Gatnamótin eru skammt frá Hagkaup í Garðabæ og Olís við Hafnarfjarðarveg.Sigurjón segir dælubíl og sjúkrabíl hafa verið senda á vettvang. Slökkviliðið sé enn á vettvangi og verði þar áfram meðan á hreinsun stendur og þar til bílarnir hafi verið fjarlægðir. Hann gerir ráð fyrir því að það geti tekið á bilinu 45-60 mínútur til viðbótar.Gera megi ráð fyrir töfum á umferð meðan á vinnunni stendur. Almennt er annasamt á veginum á þessum tíma dags.
Tafir á umferð eftir þriggja bíla árekstur í Garðabæ

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar