Sakar Írani um árásir á kælikerfi stórmarkaða

Jean-Noel Barrot, utanríkisráðherra Frakklands segir að meðlimir í íranska byltingarverðinum hafi staðið á bak við netárásir sem gerðar voru á kælikerfi franskra matvælaverslana nýlega og leiddu til þess að henda þurfti matvælum fyrir milljónir evra.Barrot fullyrti þetta á blaðamannafundi í París síðdegis. Sams konar árásir voru gerðar á verslanir í nokkrum öðrum ríkjum Evrópu. Saksóknari í París hefur nú hafið rannsókn á nokkrum meðlimum netdeildar íranska byltingarvarðarins og vill að handtökuskipanir verði gefnar út. Íranir hafa enn ekki svarað þessum ásökunum.
Sakar Írani um árásir á kælikerfi stórmarkaða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar