ESA hættir rannsókn á Skel

ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur hætt rannsókn á meintum samkeppnisreglum Skels fjárfestingafélags í tengslum við starfsemi Lyfjavals. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skel.Í tilkynningu ESA í október 2024 segir að stofnunin hafi grunsemdir um að brotið kunni hafa verið gegn samkeppnisreglum EES-samningsins. Þá var ráðist í fyrirvaralausa athugun og húsleit í samvinnu við íslensk yfirvöld.Samkvæmt tilkynningu Skels hefur félaginu borist bréf frá ESA þar sem því er tilkynnt að stofnunin hafi lokið rannsókninni og lokað málinu.„Eftir ítarlega greiningu og vandlegt mat á öllum gögnum sem aflað var sé ekki nægur grundvöllur til að halda rannsókninni áfram. Málinu er því lokið,“ segir í tilkynningunni.
ESA hættir rannsókn á Skel

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar