Snögg leit á internetinu að myndum af Angelu Merkel, fyrrverandi kanslara Þýskalands, sýnir að hún var – og er – hrifin af bláum lit. Þegar málverkið af henni var frumsýnt í Bode-safninu í janúar, viðurkenndi hún líka fúslega að valið á jakka fyrir myndina hefði ekki verið nein tilviljun.„Það var vissulega meðvituð ákvörðun,“ sagði Merkel við það tækifæri.Þúsundir gesta hafa komið í safnið beinlínis til að berja þetta málverk augum; svo margir reyndar að stjórnendur Bode ákváðu nýlega að það myndi hanga uppi þremur mánuðum lengur en upphaflega var gert ráð fyrir, til 3. janúar á næsta ári.Listamaðurinn sem málaði Merkel heitir Jérémie Queyras, ungur þýsk-franskur listamaður, og þótt fólk hafi flykkst í Bode-safnið til að sjá verkið, þá hefur það fengið misjafna dóma meðal gagnrýnenda.Í gre