Fjórar af fimm fyrirspurnum dagsins í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi snerust um afsögn forstjóra Landsvirkjunar og aðdraganda hennar. Stjórnarandstaðan beindi spjótum sínum að forsætisráðherra og fjármálaráðherra.Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins spurði Kristrúnu Frostadóttur hvort hún hefði vitað af áhyggjum Harðar Arnarsonar sem útlistaðar voru í minnisblaði til stjórnar þann 15. júní. Þær áhyggjur sneru meðal annars að því sem Hörður taldi pólitísk afskipti af daglegum rekstri fyrirtækisins.„Vissi hún af þessum alvarlegu viðvörunum þegar fjármálaráðherra sagði hér á Alþingi 19. október að hér væri sagan öll sögð?“Kristrún svaraði að Hörður hefði verið farsæll forstjóri í 17 ár og ekki átt mikið eftir af skipunartíma sínum þegar hann sagði upp starfi sínu. Þau