Lygar að þróun nýs þyngdarlyfs byggi á íslensku erfðaefni

Bloomberg greindi frá því í síðustu viku að megrunarlyfið MariTide eigi rætur að rekja til rannsókna Íslenskrar erfðagreiningar á erfðaefni um 200 þúsund Íslendinga sem fyrirtækið safnaði saman.„Við gerðum enga slíka uppgötvun. Við höfðum ekkert með byrjun á þessu prógrammi að gera,“ sagði Kári Stefánsson, stofnandi og fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, í morgunútvarpi Rásar 2.Kári Stefánsson segist þó telja lyfið verða býsna gott. Hann segir sögur af þessu tagi oft verða til séu blaðamenn látnir skrifa þær.Lyfið byggi á nýtingu sama lyfjamarks og önnur þyngdarstjórnunarlyf Eli Lilly og Novo, sem áður hét Novo Nordisk. Við þá sameind hafi Amgen hnýtt mótefni gegn svonefndum GI-viðtaka, sem tengist tilraunum með mýs en ekki mannefnafræði. „HEFÐI EKKI ÁTT AÐ GERAST“ Þannig
Lygar að þróun nýs þyngdarlyfs byggi á íslensku erfðaefni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar