Lögreglan hefur til rannsóknar innbrot hjá Gullsmiðnum í Mjódd í nótt. Eigandinn segir innbrotið hafa verið þaulskipulagt og að tjónið nemi tugum milljóna.Jón Tryggvi Þórsson rekur Gullsmiðinn. Hann segir öryggisvörð hafa gert honum og lögreglu viðvart í morgun. Vísir greindi fyrst frá.„Ég er með öryggiskerfi en þeir voru svo klókir að þeir fundu leið til að komast inn í búðina án þess að ræsa kerfið,“ segir Jón Tryggvi.Hann segir þá hafa tekið allt gull úr búðinni en skilið annað eftir. Hann vinni að því að meta tjónið en telur það nema 25 til 30 milljónum króna.Lögregla staðfestir að minnst tveir innbrotsþjófar sjáist á myndefni sem stuðst er við við rannsókn málsins. Enginn hefur verið handtekinn.