Forsætisráðherra segir ýmislegt hafa breyst til hins betra fyrir öryrkja og fatlað fólk í tíð ríkisstjórnar hennar. Þar nefnir hún meðal annars lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, breytingar á almannatryggingakerfinu og nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi.