Kolbrún Sverrisdóttir, sérfræðingur hjá Náttúrustofu Austurlands, sá um hádegisbil í gær hvar ókennilegur fugl flaug nærri heimili hennar í Fellabæ. Kolbrún segir langt í frá algengt að leðurblökur sjáist á flugi á Íslandi og hvað þá uppi á héraði.Hún hafi séð til hennar út um eldhúsgluggann, gripið símann og tekið upp myndskeið. Fljótlega hafi hún áttað sig hvers kyns væri vegna fluglagsins og vængjanna auk þess sem leðurblökur hafi ekki stél.„Mér var brugðið. Þetta var ekki það fyrsta sem ég bjóst við að sjá út um eldhúsgluggann. Það var ekki á mínum lista að sjá þetta hér á Íslandi. Það var mjög gaman, þetta var skemmtilegur fundur. Það væri gaman ef fólk verður vart við hana, endilega að láta vita.“Kolbrún segist aðeins hafa séð leðurblökuna örskotsstund og áréttar að hún sé ekki sérfr