Breski grínistinn og leikarinn Russell Brand hefur verið dæmdur í tíu og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun og kynferðisbrot. Hann var sakfelldur í fjórum ákæruliðum í síðustu viku.Þolendur Brands sögðust allar enn glíma við afleiðingar brotanna. Þær lýstu jafnframt mikilli streitu sem fylgdi því að fara með málið fyrir dómstóla til að leita réttar síns.Dómsuppkvaðningin hófst rétt fyrir klukkan ellefu í morgun. Þá voru lesnar upp yfirlýsingar þolenda Brands. Dómari tók þær til greina þegar hann ákvað fangelsisdóminn. Stutt hlé var gert á dómsuppkvaðningunni áður en henni var sjónvarpað í beinni útsendingu klukkan 14. SAKFELLDUR FYRIR NAUÐGUN OG KYNFERÐISOFBELDI Brand er 51 árs og varð frægur fyrir framkomu í útvarpi, sjónvarpi og síðar sem leikari í kvikmyndum. Hann var sakaður um nauðgu