„Markmiðið er hafa meiri stjórn á vexti gagnavera og tryggja að við fáum þau fyrirtæki sem við þurfum á að halda,“ sagði Torgeir Michelsen, ráðherra stafrænna mála á blaðamannafundi í Osló í morgun, þar sem áform norskra stjórnvalda voru kynnt.Þannig stendur til að herða reglur um leyfisveitingar og leggja áherslu á að gagnaver þjóni samfélagslegum tilgangi; þau sem bjóða heim vinnslu á rafmyntum falli ekki í þann flokk. „Við viljum ekki hvaða gagnaver sem er í Noregi,“ sagði Michelsen sem boðar strangari reglur sem taka eiga gildi næsta haust.115 gagnaver eru nú starfrækt í Noregi, samkvæmt tölum frá DataCenter Map; norsk stjórnvöld segja að orkunotkun í þessum geira hafi numið 3.2 terawattstundum í fyrra - fjórum sinnum meira en fyrir þremur árum. TÍMABUNDIÐ BANN Á NÝJAR TENGINGAR Hlu