Pólskir saksóknarar segja enn óljóst hvað hafi legið að baki árás 24 ára manns sem er grunaður um að hafa orðið níu manns að bana, þar af þremur úr eigin fjölskyldu. Maðurinn lést á sjúkrahúsi í dag, tveimur dögum eftir að hann særðist lífshættulega í skotbardaga við lögreglu í Kraká.