Minigarðinum lokað: „Því miður ekkert annað í stöðunni en að hætta rekstri“

Minigarðurinn í Skútuvogi lokar dyrum sínum í dag. Stjórn Munnbitans ehf., sem rekur Minigarðinn, ætlar að óska eftir gjaldþrotaskiptum.„Eftir rúmlega sex ára þrautagöngu er því miður ekkert annað í stöðunni en að hætta rekstri,“ segir í tilkynningu frá Sigmari Vilhjálmssyni, stjórnarformanni og hlutahafa í Munnbitanum.„Þótt þetta sé því miður eina skynsamlega niðurstaðan þykir okkur afar leitt að kveðja frábæra starfsfólkið okkar. Við þökkum öllum sem komu, spiluðu, fögnuðu og horfðu með okkur í Minigarðinum. Takk fyrir okkur.“
Minigarðinum lokað: „Því miður ekkert annað í stöðunni en að hætta rekstri“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar