Landsmenn verða 560 þúsund eftir hálfa öld samkvæmt mannfjöldaspá

Mannfjöldinn á Íslandi fer í 500 þúsund á næstu 25 árum og upp í 560 þúsund næstu hálfa öld. Það er samkvæmt miðgildi mannfjöldaspárinnar, sem er svipað og núverandi íbúafjöldi Edinborgar í Skotlandi og Malaga á Spáni.Til samanburðar má nefna að Íslendingar voru 219 þúsund árið 1976, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Hlutfall fólks á vinnualdri er talið geta farið úr 74 af hundraði niður í 67. Öldrunin stafi af lækkandi frjósemi og auknum lífslíkum.„Á næstu tíu árum gæti frjósemishlutfall lækkað niður í 1,4 börn (miðgildi) á hverja konu og eru 80% líkur á því að hlutfallið verði 1,3 til 1,5. Hins vegar bendir grunnsviðsmynd spárinnar til þess að frjósemishlutfallið verði 1,6 árið 2076.“Á næstu tuttugu árum er spáð að hópurinn 65 ára og eldri verði fjölmennari en undir tvítugu og að miðgildisald
Landsmenn verða 560 þúsund eftir hálfa öld samkvæmt mannfjöldaspá

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar