Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann til að greiða eina og hálfa milljón króna í sekt fyrir átta umferðarlagabrot. Hann ók sex sinnum bifreið sviptur ökurétti, þar af tvisvar undir áhrifum áfengis. Þá ók hann tvívegis smáfarartæki undir áhrifum áfengis.