Erlingur Agnarsson (1998) og Jóhannes Kristinn Bjarnason (2005) voru á láni hjá FH frá Víkingi seinni hluta tímabils. Með þeim fékkst aukin breidd í hópinn, þeir komu inn með reynslu og hjálpuðu liðinu að halda sæti sínu í deildinni. Erlingur hefur unnið marga titla á sínum ferli en vildi spila meira en hann fékk hjá Víkingi fyrri hluta móts. Hann kom einungis við sögu í fimm leikjum hjá FH, en þeir hefðu orðið fleiri ef ekki hefði verið fyrir meiðsli. Jóhannes Kristinn spilaði allar mögulegar mínútur sem í boði voru, skoraði eitt mark og lagði upp tvö í tólf leikjum. FH-ingar vilja halda Víkingunum innan sinna raða en þurfa að ná samkomulagi við Víking um kaup á leikmönnunum.