Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs vill að bærinn kalli eftir læknisvottorðum frá starfsfólki sem er ítrekað frá vegna skammtímaveikinda. Hún nefnir að jafnaði tvo veikindadaga á mánuði sem viðmið. Ef fullnægjandi vottorð berst ekki gæti mat trúnaðarlæknis haft áhrif á greiðslu veikindalauna.