Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur farið fram á framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir karlmanni á fertugsaldri sem grunaður er um manndráp í Breiðholti. Þetta staðfesti verjandi mannsins við fréttastofu en ekki liggur fyrir hversu langt gæsluvarðhald er farið fram á.Faðir mannsins, sem er á sextugsaldri og var sömuleiðis handtekinn, var látinn laus úr haldi um helgina.Talið er að til átaka hafi komið á milli feðganna og tveggja manna í Breiðholti aðfararnótt 1. nóvember. Þar er sonurinn talinn hafa beitt hnífi með þeim afleiðingum að annar þeirra sem varð fyrir stungunum lést. Hinn var fluttur á sjúkrahús en er ekki í lífshættu.Sonurinn losnaði úr einangrun um helgina en lögmaður hans sagði þá að slíkri kröfu yrði andmælt á grundvelli neyðarvarnar; maðurinn hafi verið að verjast árásum hins