Innbrot í minkabú enn óupplýst

Rannsókn lögreglu á fimm innbrotum í fjögur framleiðslubú svína og alifugla í sumar miðar vel. Hinn grunaði hefur játað innbrotin en innbrot á minkabúið Dalsbú er enn óupplýst.Þetta staðfestir Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður, hefur stigið fram opinberlega og játað á sig innbrot í svínabú Stjörnugríss. Hann birti myndband frá innbrotinu og aðstaða svínanna hefur verið gagnrýnd.Meðal þeirra sem kallað hafa eftir rannsókn á aðstæðum svína hjá Stjörnugrís er félag iðnaðarmanna í matvæla- og veitingageiranum, MATVÍS.Hjördís gat ekki staðfest að Einar Logi væri sá grunaði í málinu, en lögregla hafði áður greint frá því að maður á þrítugsaldri hafi játað innbrotin á sig.Innbrotin sem sá hefur játað á
Innbrot í minkabú enn óupplýst

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar