Öldruð kona á Suður-Ítalíu hefur ákveðið að selja ættarheimili sitt frá 17. öld og gefa allan söluágóðann til Lækna án landamæra. Markmiðið er að fjármagna heilbrigðisþjónustu fyrir börn á Gaza. Konan, Eugenia Granito, býr í þorpinu Rocca Cilento í Salerno-héraði. Hún vonast til þess að féð geti meðal annars nýst til að byggja sjúkrahús eða aðra heilbrigðisstofnun fyrir börn sem...