Jóhann Freyr Hallgrímsson, 37 ára Akureyringur, var fyrir um mánuði sakfelldur fyrir þjófnað í borginni Phuket í Taílandi. Hann hlaut þriggja ára skilorðsbundinn fangelsisdóm. Að sögn Jóhanns var refsingin síðan stytt um helming og frestað í tvö ár, þar sem um fyrsta brot væri að ræða. Hann þarf því ekki að sitja í fangelsi en er fastur í landinu þar sem hann hefur ekki fengið vegabréfið sitt afhent.