Dagvöruvísitala ASÍ hækkaði um 0,33 prósent frá ágúst til nóvember. Verðlækkanir voru þó talsvert algengari en áður, einkum í Bónus þar sem verð lækkaði á rúmlega 31 prósenti vara. Þrátt fyrir að verslanir hafi í september boðað verðlækkanir og verðfrystingar í því skyni að stuðla að auknum verðstöðugleika hefur matvöruverð áfram hækkað. Þetta kemur fram í nýrri verðkönnun Verðlagseftirlits ASÍ....