Dagvöruvísitala Alþýðusambands Íslands (ASÍ) hækkaði á tímabilinu ágúst til nóvember þrátt fyrir loforð matvöruverslana um að lækka verð til að sporna við verðbólgu. Verðlagseftirlit ASÍ hefur þó mælt aukna tíðni verðlækkana í haust.Hækkun dagvöruvísitölu ASÍ um 0,33% má fyrst og fremst rekja til verðhækkana á kjöti og mjólkurvörum samkvæmt tilkynningu. Verðlækkanir hafa hins vegar að mestu verið bundnar við innfluttar vörur. HÆGARI VERÐHÆKKANIR EN FYRR Á ÁRINU Í september tilkynntu fyrirtæki svo sem Hagar, Krónan og Nettó að þau ætluðu að lækka eða frysta verð á sumum vörum til að sporna gegn verðbólgu og verja forsendur kjarasamninga.Samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ lækkaði um þriðjungur vara í Bónus á tímabilinu ágúst til nóvember. Í öðrum verslunum var hlutfallið þó lægra og „meira um