Dráttur á innleiðingu þeirrar löggjafar frá Evrópusambandinu sem á við um innri markaðinn hefur í nokkrum tilvikum leitt til þess að reglugerðir og tilskipanir sem eru ekki lengur í gildi í Evrópu hafa verið teknar upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.Þetta segir Árni Páll Árnason stjórnarmaður í ESA, eftirlitsstofnun EFTA. Rætt var við hann í Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun.Biðlistinn svokallaði; gerðir og tilskipanir sem á eftir að innleiða, telur nú um sex hundruð mál, fyrir utan þær gerðir sem teknar hafa verið upp í samninginn en eru ekki komnar inn í lagaumhverfi EES-ríkjanna.„Það er vaxandi tilhneiging innan Evrópusambandsins núna að hafa reglurnar einfaldari, draga úr skýrslukvöðum og skriffinnsku, þannig að það má almennt gera ráð fyrir að nýrri reglur séu auðframkvæmanlegr