Samkvæmt mannfjöldaspá Hagstofu Íslands mun íbúum á Íslandi fjölga úr 394 þúsund í ársbyrjun 2026 í 560 þúsund árið 2076. Eftir 25 ár er gert ráð fyrir að íbúar verði hálf milljón. Í tilkynningu á vef Hagstofunnar segir að samkvæmt spánni séu 80 prósent líkur á að mannfjöldinn árið 2076 verði á bilinu 400 til 770 þúsund.