Ökumaður bíls sem hafnaði í Kleifá í umferðarslysi í gærmorgun er látinn. Hann sat fastur í bifreiðinni um tíma.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi.„Þegar björgunarlið kom á vettvang náðist ökumaður út úr bifreiðinni og var hann fluttur með þyrlu á Landspítalann. Hann var úrskurðaður látinn nokkru síðar.“Farþegi sem einnig var í bílnum komst út af sjálfsdáðum. Bæði farþegi og ökumaður eru erlendir ferðamenn á þrítugsaldri.Farþeginn var fluttur með sjúkrabíl á Landspítala til skoðunar. Meiðsl hans eru talin minniháttar.Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglu.